Thursday, March 02, 2006

Varð að vera með

Í lífinu hef ég
(x ) drukkið áfengi (og það er að verða sífellt oftar)
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
( ) verið ástfangin
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) faðmað einhvern ókunnugan
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
( ) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
( ) logið að vini/vinkonu (er nokkuð viss um að hafa alltaf verið þæg og góð við vinkonur mínar)
(x) skrópað í skólanum (jú, peer pressure, Claire neitaði að fara í conversation classes í Gelísku og dró mig með á pubbinn)
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél (þó nokkuð oft)
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
( ) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) rennt þér á sleða
(x) grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta
(x) svindlað í leik (man samt ekki eftir því, en ef ég þekki mig rétt þá hlýtur það að hafa verið einhvern tíman)
(x) verið einmana
( ) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n (daglega)
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
( ) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
( ) verið týnd/ur
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
( ) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
( ) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
( ) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x ) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý..
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

Fékk þetta af síðu hjá vinkonu minni og varð að vera með. Ég kemst ekki með tærnar þar sem hún er með hælana í hvað hún hefur áorkað í lífinu en ég varð að setja mitt framlag hérna.

No comments: